Frá hugmynd að veruleika

 

Frá hugmynd
veruleika

Álftanesgolf

Golfklúbbur Álftaness er 9 holu, par 32 völlur, sem er 3200 metrar á rauðum teigum og um 3300 metrar á gulum teigum. Þó hann sé í styttra lagi og henti hærri forgjafa kylfingur mjög vel, þá leynir hann á sér og reynist lægri forgjafakylfingur krefjandi.

Siglingaklúbburinn Vogur

Siglingaklúbburinn Vogur var stofnaður árið 1980, á tímum þar sem áhugi á siglingum og sjósporti var ört vaxandi á höfuðborgarsvæðinu. Klúbburinn varð til að frumkvæði áhugafólks um segl- og kænusiglingar sem sá tækifæri í því að nýta aðstöðu í Arnarnesvoginum til skipulagðrar íþróttastarfsemi.

Bag & Tag

Bag & Tag býður ríkt vöruúrval af kjólum og flíkum til útleigu fyrir viðburði eða skemmtanir. Við leggjum áherslur á gæði, fjölbreyttni og framúrskarandi þjónustu þegar við mætum þörfum okkar viðskiptavina.

Vivos lögmenn

Vivos lögmannsstofa tryggir umbjóðendum sínum sérhæfða, vandaða og persónulega þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar en þó með sérstakri áherslu á löggjöf á sviði samninga, fyrirtækja og viðskipta almennt. Kappkostað er að vinna hvert mál af fagmennsku og metnaði þar sem hagsmunir skjólstæðinga Vivos lögmanna eru í fyrirrúmi.

UMFÁ

Ungmennafélag Álftaness hefur starfað síðan 1946 og rekur öflugar deildir í fótboltanum, körfuboltanum, blaki, Soo bahk do og er líka með skemmtilegan hlaupahóp. UMFÁ er drifkraftur fyrir fjölbreytta og lifandi afþreyingu fyrir íbúa á Álftanesi.

Stjörnuspá Siggu Kling

Sigga Kling er lífskúnstner af guðs náð og með eindæmum jákvæð. Hún er uppalin á Snæfellsnesi og staðhæfir að orka Snæfellsjökuls hafi átt mikinn þátt í að efla andlega hæfileika hennar. Stjörnuspáin hefur náð gríðarlegum vinsældum hér á landi síðan árið 2016 en hún birtist fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Dyrakerfi fyrir lengra komna

Við erum stoltur umboðsaðili BasIP á Íslandi. BasIP í Bretlandi hefur 15 ára víðtæka reynslu hvað varðar þróun og áreiðanleikaprófanir sem standast allar helstu gæðavottanir. Við bjóðum þriggja ára ábyrgð á bæði vöru og uppsetningu á þessu frábæra vöruúrvali.

Piltur

Með piltur.is er verið að auðvelda fjárfestum að gera sér grein fyrir virði einstakra fyrirtækja sem skráð eru á hlutabréfamarkaði á Íslandi. Vefurinn piltur.is er í eigu samnefnds félags, Piltur ehf. sem er í meirihluta eigu Þorgils Óttars Mathiesen en hann vinnur jafnframt afkomuspár og verðmat fyrirtækja sem er birt á vefnum.

VÖRUÞRÓUN

ALMENN HÖNNUN

HUGBÚNAÐARGERÐ

VEFSÍÐUR & VERSLANIR

MARKAÐSSETNING

VÖRUÞRÓUN

ALMENN HÖNNUN

HUGBÚNAÐARGERÐ

VEFSÍÐUR & VERSLANIR

MARKAÐSSETNING